KA mætir Grindavík í bikarnum

KA á heimaleik gegn Grindavík í 32ja liða úslitum Valitors-bikarsins i knattspyrnu, en dregið var í hádeginu í dag.

Leikurinn fer fram miðvikudaginn 25. maí, en ekki liggur fyrir hvar hann verður spilaður. KA-menn spiluðu gegn Grindvíkingum í Grindavík sl. sumar í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar og slógu þá út. Það verður spennandi að vita hvað gerist nú.

Grindvíkingar hafa spilað tvo leiki í Pepsí-deildinni það sem af er þessu keppnistímabili. Í fyrstu umferð höfðu þeir sigur á Fylki en í annarri umferð töpuðu þeir fyrir Val.

KA spilar sinn fyrsta leik í 1. deildinni nk. föstudag þegar liðið mætir Leikni á útivelli.