KA mætir Silkeborg í evrópukeppninni

Dregið var í aðra umferð Sambandsdeildar UEFA í hádeginu og voru Bikarmeistarar KA í pottinum en KA slapp við að leika í fyrstu umferð vegna Bikarmeistaratitilsins og góðs gengis íslenskra liða í Evrópu undanfarin ár.

KA dróst gegn danska liðinu Silkeborg IF og fer fyrri leikur liðanna fram ytra þann 24. júlí á JYSK Park og síðari leikurinn verður á Greifavellinum þann 31. júlí. Eins og kom fram í gær fékk KA undanþágu til að leika á KA-svæðinu og verður afar spennandi að fá jafn öflugt lið og Silkeborg hingað norður.

Það er ljóst að það er gríðarlega spennandi verkefni framundan og eina vitið að taka dagana frá strax!