KA-menn fá betri kjör hjá N1

N1 er aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar KA. Af því tilefni vill N1 bjóða stuðningmönnum liðsins sérskjör á eldsneyti og ýmsu öðru sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða.


Afsláttur til stuðningsmanna er sem hér segir: 5 kr. afsláttur af eldsneyti sem skiptist í 3 krónur af dæluverði og 2 krónur í formi punkta. Að auki fer hluti af hverjum eldsneytislítra til KA.

Afsláttur af smurolíum og smurþjónustu á þjónustuverkstæðum N1 er 15% frá listaverði á hverjum tíma sem skiptist í 12% beinan afslátt og 3% í formi punkta.

15% afsláttur er veittur af bíla- og rekstrarvörum og þar af 3% í formi punkta.

Einnig er veittur 15% afsláttur af hjólbörðum og af vinnu við hjólbarða sem og dekkjageymslu og þar af 3% í formi punkta.

Hægt er að greiða fyrir allar vörur á öllum sölustöðum N1 með punktum og jafngildir 1 punktur 1 krónu.

Hægt er að velja um fimm greiðsluleiðir: Reikningsviðskipti, tengingu við debet- eða kreditkort, fyrirframgreitt kort eða staðgreiðslukort/afsláttarkort.

KA-menn sem vilja ganga að þessum sérkjörum eru beðnir að senda eftir farandi upplýsingar á netfangið getraunir@ka-sport.is:

Nafn og kennitölu ásamt heimilisfangi, póstnúmeri og stað, síma og netfangi auk upplýsinga um valda greiðsluleið.

Ef KA-menn eiga nú þegar greiðslulykil eða N1 kort býðst þeim að senda tölvupóst á getraunir@ka-sport.is með kennitölu sinni og kjör viðkomandi verða þá uppfærð í ofangreind kjör.

Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda tölvupóst á getraunir@ka-sport.is