Félagar!
Þá er komið að næsta leik í þessari ótrúlega jöfnu 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla
Laugardaginn 7. ágúst munu okkar menn leika gegn Njarðvík. Leikurinn hefst kl. 14:00 á Akureyrarvelli, heimavelli okkar KA-manna.
Að því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag á Pósthúsbarnum við Skipagötu. Það var mjög góð
mæting á síðustu upphitun okkar á pizzastaðnum Bryggjunni og því sáu staðarhaldarar sér ekki annað fært en að flytja
herlegheitin í stærra húsnæði, Pósthúsbarinn.
Dagskrá hefst kl. 12:30
Andlitsmálning í KA-litunum
Skemmtilegt upprifjunarmyndband af Íslandsmeistaratitlinum árið 1989
Steingrímur Eiðsson, aðstoðarþjálfari KA, fer yfir byrjunarlið, leikskipulag o.fl. sem gaman verður að heyra
Söngæfing
Marsering á völlinn!
Pizzahlaðborð ásamt gosi - 500 krónur á mann - gjöf en ekki gjald
Yngri flokkar KA hafa fylkt liði á völlinn í síðustu leikjum en flestir þeirra verða í öðrum verkefnum um helgina. Því
ríður á að sem flestir láti sjá sig, einkum þeir sem ekki hafa haft möguleika á að mæta til þessa.
KA-menn! Gulir og glaðir! Gerum okkur glaðan dag!
Höfum gaman, syngjum saman!
Áfram KA!