Knattspyrnudeild KA og Hallgrímur Mar Steingrímsson hafa ákveðið að nýta ákvæði í samningi sínum og framlengja hann út sumarið 2026. KA og Grímsi skrifuðu undir tveggja ára samning sumarið 2023 en samningurinn innihélt ákvæði um þriðja árið sem hefur nú verið virkjað.
Eru þetta ákaflega góðar fréttir enda hefur Grímsi verið einn besti leikmaður KA í sumar sem og undanfarin ár en Grímsi hefur heldur betur skrifað sögu knattspyrnudeildar KA upp á nýtt.
Kappinn er uppalinn hjá Völsung á Húsavík en kom átján ára til liðs við KA fyrir sumarið 2009. Síðan þá hefur hann verið algjör lykilmaður í liði KA og í þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan liðsins síðan þá er liðið fór úr því að leika í næstefstu deild í að festa sig í sessi Bestudeildarinnar, verða Bikarmeistari og leika í Evrópu.
Grímsi er í dag leikjahæsti leikmaður í sögu KA með 370 leiki í deild, bikar, evrópu og meistarakeppni KSÍ en hann er einnig leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild með 201 leik. Ekki nóg með það að þá er Grímsi einnig markahæsti leikmaðurinn í sögu KA með 118 mörk sem og markahæsti leikmaður félagsins í efstudeild með 68 mörk. Enn eitt metið setti hann á dögunum er hann varð markahæsti leikmaður KA í evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 evrópuleikjum, en enginn hefur leikið fleiri evrópuleiki fyrir KA.
Á núverandi sumri hefur Grímsi leikið 24 leiki og gert í þeim 9 mörk, það eru því heldur betur stórkostlega fréttir að Grímsi muni leika áfram með KA og ljóst að þessi magnaði kappi mun halda áfram að endurskrifa söguna með KA. Framundan er afar spennandi barátta þar sem bæði er stutt upp í efri hluta Bestudeildarinnar sem og niður í fallsvæðið fyrir skiptingu deildarinnar en KA tekur á móti Fram á sunnudaginn í gríðarlega mikilvægum leik og ekki ólíklegt að þessi magnaði kappi geri sitt 10 mark í sumar í leiknum.