Stelpurnar í A-liði KA í 5. flokki gerðu sér lítið fyrir í morgun og sigruðu Pæjumótið í Eyjum. Stelpurnar unnu mikinn baráttusigur á Breiðabliki í gær í riðlakeppninni og tryggðu sér sæti í úrslitum. Í morgun spiluðu stelpurnar síðan tvo úrslitaleiki þar sem þær sigruðu Stjörnuna 2-1 og Hauka 1-0 og stóðu þar með uppi sem sigurvegarar í A-liða keppninni. Og ekki nóg með það. KA var útnefnt prúðasta félag mótsins, sem ástæða er til að vera stolt af og Margrét Árnadóttir í A-liði KA var útnefnd efnilegasti leikmaður mótsins.
Þessi frábæri árangur stelpnanna undirstrikar hversu góður efniviður eru í stúlknaflokkunum í KA. Yngriflokkastarfið hefur
undanfarin ár lagt stóraukna áherslu á kvennaboltann og árangurinn er nú að koma í ljós. Allir KA-menn eru stoltir af stelpunum okkar
í Eyjum og óska þeim og þjálfurum þeirra, Túfa og Alla, innilega til hamingju með frábæran árangur. Þessir
þjálfarar hafa lagt alúð við sitt starf og hafa kennt stelpunum að spila flottan fótbolta, svo eftir hefur verið tekið!
A-liðið lenti í lang sterkasta riðlinum á mótinu. Þær unnu Selfoss 7-0, Fjölni 3-1, KR 5-2 og Breiðablik 1-0 en töpuðu fyrir Val 1-3.
Voru með jafn mörg stig og Blikar í riðlakeppninni en komust í úrslit vegna sigurs á Blikum í innbyrðis viðureign.
B-lið KA í 5. flokki lenti í 8. sæti í Eyjum og C-liðið í því 7. Pæjumótinu lýkur núna eftir hádegið og eru stelpurnar væntanlegar heim seinnpartinn í dag.