KA selur Ívar Örn til Breiðabliks

Knattspyrnudeild KA hefur selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks. Ívar Örn sem er uppalinn hjá KA hefur verið fyrirliði KA undanfarin ár og sýnt sig sem einn besti miðvörður Bestu deildarinnar.

Ívar Örn sem er fæddur 1996 lék sína fyrstu leiki með meistaraflokksliði KA sumarið 2015, hann hefur síðan leikið alls 181 keppnisleik fyrir KA í deild, bikar, evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann var í liði KA sem vann sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016 sem tryggði félaginu sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið hefur leikið allar götur síðan auk þess að vera fyrirliði KA sem varð Bikarmeistari 2024. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989.

Við óskum Ívari góðs gengis í Kópavoginum og þökkum honum fyrir magnað framlag til félagsins.