KA semur við þrjá unga og efnilega leikmenn

Frá vinstri: Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar KA, Lára Einarsdóttir, Fannar Hafsteinsso…
Frá vinstri: Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar KA, Lára Einarsdóttir, Fannar Hafsteinsson og Ævar Ingi Jóhannesson
Knattspyrnudeild KA gerði í dag samning við þrjá unga og efnilega leikmenn sem allir eru uppaldir KA-menn og eru nú á eldra ári í þriðja flokki - þ.e.a.s. fæddir árið 1995. Þetta eru Lára Einarsdóttir, Fannar Hafsteinsson og Ævar Ingi Jóhannesson.

 

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Lára Einarsdóttir nú þegar látið til sín taka í meistaraflokki Þórs/KA og sömuleiðis hefur hún spilað með 2. flokki Þórs/KA og staðið sig með mikilli prýði. Hún hefur upp alla yngri flokka KA sýnt mikinn dugnað og elju við æfingar sem nú hefur skilað henni í allra fremstu röð knattspyrnukvenna hér á landi í þessum aldursflokki. Lára á nú þegar að baki fjóra landsleiki í U-17 landsliði Íslands og hefur skorað í þeim eitt mark. Hún var í U-17 landsliðinu í vetur í Póllandi sem vann sér með eftirminnilegum hætti sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins, sem fer fram í Sviss undir lok júlí.
Lára Einarsdóttir er fyrsta stúlkan sem knattspyrnudeild KA gerir samning við.

Ævar Ingi Jóhannesson er fyrst og fremst miðjumaður en getur leyst ýmsar stöður á vellinum. Hann hefur í vetur verið kallaður ítrekað á úrtaksæfingar fyrir landslið U-17 en varð fyrir því óláni í febrúar sl. að meiðast illa, en er nú smám saman að ná fyrri styrk. Ævar Ingi kom inn á í nokkrum meistaraflokksleikjum í Soccerade mótinu í vetur.

Fannar Hafsteinsson er stór og stæðilegur markmaður. Hann hefur vakið athygli upp alla yngri flokkana fyrir öfluga markvörslu, en auk almennrar þjálfunar hefur Sandor Matus, markmaður meistaraflokks KA, leiðbeint honum undanfarin ár. Eins og Ævar Ingi hefur Fannar verið í vetur kallaður á úrtaksæfingar fyrir landslið U-17. Fannar hefur komið við sögu í nokkrum leikjum KA í meistaraflokki.

"Það er okkur ánægjuefni að gera samninga við þessa þrjá efnilegu leikmenn, sem undirstrikar metnaðarfullt yngri flokka starf félagsins undanfarin ár. Í mínum huga munum við í auknum mæli í framtíðinni sjá uppalda KA-menn alla leið upp í meistaraflokk," segir Bjarni Áskelsson, formaður knattspyrnudeildar KA.