7 dagar: KA spáð 9. sæti í 1. deildinni

Á vefsíðunni Fotbolti.net í dag er KA spáð 9. sæti í 1. deildinni í sumar. Þetta er sama sæti og liðið endaði í á sl. keppnistímabili.

Fotbolti.net hefur undanfarna daga verið að birta spá fyrirliða og þjálfara liðanna í 1. deildinni um röð liðanna í deildinni í sumar. Búið er að birta spár um fjögur neðstu sætin, sem er sem hér segir:

  9. KA 103 stig
10. HK 63 stig
11. Þróttur R 60 stig
12. Grótta 42 stig
Í umfjöllun á Fotbolti.net segir svo um KA-liðið í sumar:
KA var í basli stærstan hluta síðasta tímabils og hafnaði í níunda sæti. Þetta árið mun liðið einnig enda í níunda sæti ef spáin rætist. Lokakafli síðasta sumars var ákaflega dapur hjá Akureyrarliðinu sem fór í gegnum síðustu sex umferðirnar án þess að hljóta stig. Liðið er talsvert breytt frá því í fyrra og hefur erlendum leikmönnum fækkað.

Hvað segir Garðar Gunnar? Garðar Gunnar Ásgeirsson er álitsgjafi síðunnar um 1. deild karla. Garðar hefur verið sérfræðingur útvarpsþáttar Fótbolta.net um neðri deildirnar síðustu ár. Hann þjálfaði á sínum tíma meistaraflokk Leiknis í Breiðholti með góðum árangri.

KA hefur orðið fyrir töluverðri blóðtöku síðan síðasta sumar. Þeir hafa misst bæði David Disztl og Janes Vrenko og svo hefur Túfa, Srjdan Tufegdzic, ekkert spilað með þeim í allan vetur. Í staðinn hafa þeir fengið efnilega stráka lánaða frá liðum í Pepsi-deildinni.

Styrkleikar: Það er alltaf erfitt fyrir önnur lið að fara norður að spila. Þetta eru ferðalög og ég tel að Akureyrarvöllur sé einn af þeirra styrkleikum. Markvörðurinn Sandor Matus hefur verið í hópi bestu markvarða landsins. Hann átti reyndar ekki gott tímabil í fyrra en ég held að hann verði einn af lykilmönnum liðsins í sumar. Haukur Heiðar Hauksson hægri bakvörður hefur verið sterkur hjá þeim síðustu ár og er lykilmaður þrátt fyrir ungan aldur.

Veikleikar: Hafa misst lykilmenn ásamt því að það er kominn nýr þjálfari. Það tekur alltaf tíma fyrir nýjan þjálfara að koma sér inn í hlutina og einnig fyrir aðra leikmenn að taka við keflinu af þeim sem eru farnir. Framherjinn spræki Ágúst Örn Arnarson sem þeir fengu lánaðan frá Breiðabliki verður ekki með þar sem hann sleit krossbönd. Ég tel að það sé mikill missir fyrir þá, hann hefði getað orðið drjúgur fyrir þá í sumar.

Lykilmenn: Sandor Matus, Haukur Heiðar Hauksson og Guðmundur Óli Steingrímsson.

Gaman að fylgjast með: Hallgrímur Mar Steingrímsson, eldsnöggur og flinkur kantmaður frá Húsavík. Steinn Gunnarsson er líka strákur sem vert er að fylgjast með.



Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:


Þjálfarinn
Gunnlaugur Jónsson tók við KA í vetur. Hann kemur til félagsins frá Val þar sem hann þjálfaði í fæddur en hætti að tímabilinu loknu. Gunnlaugur er fæddur árið 1974 og gríðarlega reynslumikill sem leikmaður. Hann hóf þjálfaraferil sinn sem spilandi þjálfari á Selfossi fyrir tímabilið 2009. Hann gerði gott verk þar og undir hans stjórn unnu Selfyssingar fyrstu deildina og komust upp í úrvalsdeild. Undir hans stjórn hafnaði Valur í 7. sæti Pepsi-deildarinnar.


Komnir:
Andrés Vilhjálmsson frá Þrótti
Ágúst Örn Arnarson frá Breiðabliki á láni
Boris Lumbana frá Örebro
Dan Howell frá Gróttu
Elvar Páll Sigurðsson frá Breiðabliki á láni
Hallgrímur Mar Steingrímsson frá Völsungi
Víkingur Hauksson úr Draupni

Farnir:
Andri Fannar Stefánsson í Val
David Disztl í Þór
Daniel Alan Stubbs
Dean Martin í ÍA
Janez Vrenko í Þór


Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA, er einnig í viðtali á Fotbolti.net í dag og þar segir hann:
,Ég held að þessi spá ykkar komi ekki á óvart. Það hafa verið miklar breytingar á liði KA en það er ljóst að við ætlum okkur að gera betur en í fyrra. Það er nauðsynlegt að koma liðinu á betri stað í deildinni og ná upp stöðugleika. Ég hef verið ánægður með stígandann hjá liðinu í vetur og við ætlum okkur að vera klárir í næstu viku þegar ballið byrja,“ sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA um spá fyrirliða og þjálfara í fyrstu deildinni en þar er liðinu spáð níunda sætinu.

,,Ég held að það sé ekki raunhæft á að liðið berjist um að komast upp í efstu deild á þessum sumri. Við ætlum að koma okkur upp töfluna en við gerum okkur grein fyrir því að liðið er spurningarmerki eins og reyndar mörg lið í deildinni, það getur því verið stutt á milli hjá mörgum liðum.“

Gunnlaugur tók við KA af Dean Martin í vetur og síðan þá hafa verið talsverðar breytingar á leikmannahópnum.

,,Fjórir fremstu menn liðsins í fyrra eru farnir og annar hafsentinn auk þess sem vinstri bakvörður sem spilaði heilmikið í fyrra er farinn í Þór þannig að við fáum gjörbreytt KA lið í sumar sem er ungt og munu margir leikmenn sem fá sína fyrstu alvöru reynslu í sumar.“

Gunnlaugur segir að það hafi verið erfitt að fá leikmenn á Akureyri í byrjun vetrar en síðan þá hefur ræst úr því.

,,Það var erfitt til að byrja með og það er kannski í takt við þessa umræðu sem hefur verið. Ég ætla svo sem ekkert að grenja yfir því. Við höfum verið heppnir með nýja leikmenn, Andrés hefur verið sterkur í vetur, lánsmenn úr úrvalsdeildinni hafa smellpassað í hópinn en vorum reyndar óheppnir að Ágúst (Örn Arnarson) skuli hafa meiðst,“ sagði Gunnlaugur en Ágúst verður ekkert með í sumar vegna hnémeiðsla.

Miðjumaðurinn reyndi Srdjan Tufegdzic hefur einnig verið að glíma við meiðsli og ljóst er að hann verður ekki með KA í byrjun móts.

,,Hann er reyndur miðjumaður sem meiddist í lok janúar og því miður hefur endurhæfingin ekki gengið vel. Hann er ekki byrjaður að æfa en ég vonast til að hann geti byrjað að æfa um miðjan maí.“

Einn af leikmönnunum sem KA fékk til sín í vetur er bandaríski sóknarmaðurinn Daniel Howell sem var hjá Gróttu í fyrra. Howell samdi við KA eftir að verið á reynslu hjá félaginu. ,,Hann leit mjög vel út þann tíma sem hann var á reynslu og síðan þurfti hann að fara til Bandaríkjanna meðan beðið var eftir landvistarleyfi hér á landi. Hann er búinn að vera mánuð í Bandaríkjunum og það hefur gert okkur svolítið erfitt fyrir.“

Einn annar erlendur leikmaður er kominn til KA en það er varnarmaðurinn ungi Boris Lombana sem kemur á láni frá Örebro. Boris er einnig tónlistarmaður.

,,Hann lítur mjög vel út og er greinilega mjög sterkur leikmaður. Auk þess er hann efnilegur R&B söngvari og það er gaman að því. Hann er léttur og skemmtilegur strákur og smellpassar inn í hópinn,“ sagði Gunnlaugur að lokum.