Lið KA 4. Niðri: Bjartur, Óli, Viktor og Ólafur. Miðja: Tómas, Atli og Hafsteinn. Uppi: Baldur og Óli Nelli.
Nú er 3.dagur Shellmóts byrjaður en okkar strákar í 6.flokki hafa gert frábært mót til þessa. Fyrstu tveir dagar mótsins fara í
það að raða niður í styrkleika og geta þannig A lið spilað við D lið og svo frammvegis. KA 1 komst vel frá þessum undanriðlum og
sigruðu 5 leiki og gerðu 1 jafntefli og komust því í undanúrslita riðil, sem er sterkasti riðillinn.
Þeir byrjuðu að spila þann riðil í morgun og gerðu jafntefli gegn Colorado 1-1 en töpuðu svo gegn Selfoss 3-0. En sigurvegarinn úr þessum
riðli spilar um Shellmótsbikarinn.
KA 2 gekk einnig mjög vel fyrstu tvo daganna og sigruðu 4 leiki og gerðu 2 jafntefli og var það einungis markahlutfall sem gerði það að verkum að
þeir komust ekki í sterkasta flokinn. Þeir spiluðu gegn Fylki 1 í morgun og biðu lægri hlut 4-1, en þó tveir leikir eftir í
riðlinum í dag.
KA 3 vann 2, gerði 2 jafntefli og tapaði 2. En þeir hafa gert gott mót nú í morgun og sigrað báða sýna leiki og eiga því
góðan möguleika á að keppa til úrslita í sínum strykleika flokki.
KA 4 vann 3, gerði 2 jafntefli og tapaði 1, Þeir hafa síðan nú í morgun tapað 1 leik gegn Fram 3 og gert 1 jafntefli gegn Stjörnunni 6.
Svo í gær var spilaður árlegur leikur á milli landsliðs og pressuliðs, þar sem einn fulltrúi frá hverju liði spilar. Að
þessu sinni var Þorsteinn Þorvaldsson frá KA og þjálfararnir Egill Ármann Kristinsson og Túfa stýrðu landsliðinu.