“Staðan á hópnum er góð, lánsmennirnir þrír og Haukur Hinriks eru komnir norður og æfðu með okkur í kvöld en Steinn Gunnarsson fær frí vegna anna í Háskólanum. Aðrir eru klárir fyrir utan Tufa, Alla Hannessar og Magga Blö sem eru meiddir. Það er góð stemmning í hópnum og menn hlakka virkilega til leiksins gegn höfuðandstæðing okkar.” Sagði Gulli
Eins og flestir muna eftir sigraði KA Þór í úrslitum Soccerade mótsins fyrr í vetur en munu stuðningsmenn fá sóknarbolta frá KA í leiknum? “Ég vona að fá fáum vel útfærðan sóknarleik líkt og við sýndum gegn Keflavík um síðustu helgi en allt liðið þarf að spila betri varnarleik. Við fengum að kynnast því gegn Þór í febrúar að ef við erum ekki vakandi í varnarleiknum eru Þórsarar það öflugir að illa getur endað. Það er alveg ljóst að Þórsarar munu leggja allt í sölurnar í þessum leik því það er ekki víst að liðin eiga eftir að mætast á þessu ári.”
Það eru nokkrar breytingar á liði KA frá síðasta leik við Þór og liðið verið að pússast saman, ertu ekki sammála að KA liðið er mun sterkara núna en í síðasta leik gegn Þór? “Við erum sterkari lið en þá, það er mun meiri breidd og menn farnir að þekkja betur nná hvern annan. Þórsarar hafa líka sýnt ágætis stíganda í sínum leik og gegn Selfoss sýndu þeir hvers þeir eru megnugir ef andstæðingar þeirra eru ekki í standi. Ég býst við hörkuleik, við fáum alvöru granna slag þar sem ekkert verður gefið eftir.“
Eitthvað að lokum? “Ég vonast til að aðdáendur KA fjölmenni á þennan leik, strákarnir þurfa að fá stuðning enda rétt rúmur mánuður í mót og okkur veitir ekki jákvæðum straumum inná völlinn. Auk þess lofa ég hörku leik og ég efast um að menn vilja vera í vinnunni daginn eftir þegar leikurinn verður ræddur enda mun hann verða aðalumræðuefni dagsins.”