KA - Þór: Hvað segir fólkið?

Andri Snær fékk að láta reyna á spádómsgáfurnar
Andri Snær fékk að láta reyna á spádómsgáfurnar

Upphitun fyrir leikinn gegn Þór hefst hér með formlegum hætti. Ég hitti á nokkra KA menn og einn Þórsara og leyfði þeim að spreyta sig á spádómshæfileikum sínum. KA menn eru bjartsýnir á sigur en að sjálfsögðu spáði Þórsarinn Jan Eric Jessen fótboltadómari sínum mönnum sigur.

 Andri Snær Stefánsson handboltakappi reið fyrstur á vaðið og spáði eftirfarandi: 1-0 fyrir KA, ég spái að Andrés Vilhjálmsson skori markið og að Sandor Matus eigi eftir að loka markinu og verður maður leiksins einu sinni sem oftar, enda besti markmaður okkar síðan Þórður Þórðar var í markinu 2002

 Jan Eric Jessen Þórsari og fótboltadómari: Þór 2 - 1 KA Þórsarar eru ennþá sárir eftir að hafa tapað úrslitaleik Soccerademótsins gegn KA og leggja því mikið uppúr því að vinna þennan leik.

Gunnar Níelsson gall harður KA maður: KA vinnur Þór það  er ekki flóknara en það.

Aðalbjörn Hannesson þjálfari hjá Breiðablik og KA maður: 2-1 sigur, Andrés og Dan skora

Steingrímur Örn Eiðsson fyrrum leikmaður KA: 2-2 Gummi og Elvar

Elís Orri KA maður:2-2 ég ætla að vera bjartsýnn og segja að sissi verði grjótharður og setji eitt eftir fast leikatriði og grímsi setji hitt!

Sverrir Freyr Jónsson KA maður: 2-1 fyrir KA, Andrés Vilhjálmsson og Hallgrímur Mar með mörkin

Ólafur Arnar Pálsson KA maður: Vissulega verður þetta erfiður leikur gegn nokkuð sterku úrvalsdeildarliði. Okkar mönnum hefur gengið ágætlega fyrir framan mark andstæðinganna í síðustu leikjum og eins búa frændur okkar norðan Glerár yfir sóknarlega sterku liði. KA-menn hafa kannski verið í hvað mestum vandræðum með sinn leik varnarlega og því býst ég við markaleik. Ég spái að sjálfsögðu Íslandsmeisturum KA sigri í leiknum, þar sem við skorum 3 mörk en fáum á okkur 2. Dan Howell skorar fyrsta mark KA sem verður jafnframt jöfnunarmark í fyrri hálfleik með skalla af stuttu færi. Hallgrímur Mar kemur KA yfir snemma í síðari hálfleik áður en Howell skorar þriðja markið á 68. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir vel útfærða sókn. Þórsarar ná svo að minnka muninn í uppbótartíma áður en ágætur dómari leiksins flautar hann af við mikinn fögnuð KA-manna. Þrjú stig í hús!