Kæru KA menn og stuðningsfólk!

Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar KA viljum við færa ykkur öllum innilegar þakkir fyrir frábæran stuðning í sumar. Stuðningur ykkar hefur verið ómetanlegur, bæði innan vallar sem utan, og gefur okkur kraft og orku fyrir þau verkefni sem framundan eru.

Það er ljóst að við erum ósátt við niðurstöðu tímabilsins. Nú er lokið lengsta samfellda tímabili okkar í efstu deild sem spannar 10 tímabil, sem hefur fært okkur marga sigra, bikarmeistaratitil, annað sætið í deildinni sem er okkar næst besti árangur sem og Evrópuleik hér á KA svæðinu. Auðvitað hafa skipst á skin og skúrir, en minningabankinn er fullur af góðum minningum. En það þýðir ekki að dvelja lengi við þá stöðu sem við komum okkur í, heldur líta inná við, fara yfir það sem vel var gert og skoða hvað við getum gert betur til að endurheimta sæti okkar í deild hinna bestu. Íþróttir eiga sér engan enda heldur bara nýtt upphaf og nýjar áskoranir.

KA er félag sem er sterkast þegar allir standa saman. Það hefur sagan kennt okkur og það verður áfram okkar mesti styrkur.

Árið 2028 fagnar KA 100 ára afmæli. Knattspyrnufélag Akureyrar á sér stolta og merka sögu. Í gegnum tíðina hefur félagið unnið til fjölda verðlauna og fagnað bæði Íslands- og bikarmeistaratitlum í þeim íþróttagreinum sem félagið okkar starfrækir. Sú saga er byggð á samstöðu, óeigingjörnu starfi, metnaði og trú á félagið okkar.

Og þeirri sögu er hvergi nærri lokið.

Við ætlum að halda áfram að skrifa sögu KA. Við ætlum að byggja upp öfluga knattspyrnudeild þar sem metnaður, samheldni og vinnusemi verða í fyrirrúmi. Markmiðið er skýrt: Að koma KA aftur í deild þeirra bestu, þar sem við viljum vera.

Við viljum einnig færa styrktaraðilum okkar sérstakar þakkir fyrir þeirra mikilvæga stuðning, en án þeirra væri starf okkar ekki mögulegt. Um leið hvetjum við alla sem hafa tök á að halda áfram að styðja við félagið og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem fram undan er.

Það verkefni vinnum við ekki ein. Það vinnum við saman, stjórn, leikmenn, þjálfarar, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar, stuðningsmenn og allt KA fólk. Við finnum fyrir stuðningi ykkar allra og mér finnst gleðilegt að segja ykkur að margir hafa haft samband við okkur og lýst yfir áhuga sínum í að leggja lóð sín á vogarskálirnar hjá okkur. Mig langar því til að nota tækifærið til að hvetja ykkur sem vilja vinna með okkur í knattspyrnudeildinni að hafa samband við okkur og taka þátt í verkefninu.

Við stöndum saman í sigrum og mótlæti. Þannig hefur KA byggst upp og þannig munum við halda áfram.

Takk fyrir sumarið, takk fyrir tryggðina og takk fyrir að standa með KA.

Áfram KA

Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar KA.
Hjörvar Maronsson