Knattspyrnudeild vantar sjálfboðaliða

Akureyrarvöllur fyrir ári síðan. Hann hefur tekið miklum breytingum síðan þá, bæði grasið og stúkan.
Akureyrarvöllur fyrir ári síðan. Hann hefur tekið miklum breytingum síðan þá, bæði grasið og stúkan.

Okkur vantar hjálpfúsar hendur til að aðstoða við framkvæmd á heimaleikjum KA í sumar.

Það sem um ræðir er að ná saman 20 manna hóp sem til er í að gera góða umgjörð á heimaleikjum félagsins okkar enn betri en verið hefur.  Miðasala, gæsla, sjúkrabörur, stíga niður völl í hálfleik og eftir leik ásamt öðru sem til fellur.

Ertu ekki til í slaginn KA félagi góður?  Ef svo er hafðu þá samband við Gunnar Níelsson sími 860 6751 eða sendu email á siggi@ka-sport.is og þér verður vel tekið.