Sjóvá og knattspyrnudeild KA undirrituðu á dögunum nýjan tveggja ára samstarfssamning en Sjóvá hefur verið ákaflega öflugur bakhjarl deildarinnar í vel rúmlega áratug og erum við afar þakklát þeim fyrir áframhaldandi samstarf sem mun skipta miklu máli í knattspyrnustarfinu.
Á myndinni má sjá þá Hallgrím Jónasson þjálfara KA og Valgeir Páll Guðmundsson svæðisbústjóra Sjóvá en þeir handsöluðu samninginn fyrir framan nýju stúkuna á KA-svæðinu sem var notuð í fyrsta skiptið í vikunni þegar KA og Þór mættust í Akureyrarslagnum.
Samstarf knattspyrnudeildar KA og Sjóvá hefur verið afar gott en Sjóvá hefur verið einn stærsti styrktaraðili deildarinnar í ansi mörg ár. Það er ákaflega jákvætt að þetta blómlega samstarf haldi áfram og hlökkum við til að vinna áfram náið með Sjóvá.