Knattspyrnuskóli KA hefst á morgun, þriðjudag, en skólinn er haldinn af meistaraflokki KA og er fyrir stráka og stelpur fædd 2005-2012. Óli Stefán Flóventsson þjálfari meistaraflokks setur upp æfingarnar sem eru einstaklingsmiðaðar og stuðla að því að bæta leikmenn í sinni eigin stöðu.
Leikmenn meistaraflokks aðstoða krakkana og leiðbeina en áhersla er lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Von okkar er að samhliða því að krakkarnir upplifi öðruvísi æfingar sem munu aðstoða þau á vellinum þá muni þau tengjast leikmönnum KA betur og hafa gaman síðustu vikuna fyrir jól.
Þá verður fyrirlestur á föstudaginn um hvað þarf til að ná árangri í íþróttum frá Silju Úlfarsdóttur sem er hlaupa- og afreksþjálfari með meiru.
6.-7. flokkur æfir þriðjudag og fimmtudag kl. 14:00-15:30 og laugardag kl. 10:30-12:00
4.-5. flokkur æfa þriðjudag kl. 15:15-16:45, fimmtudag kl. 15:30-17:00 og laugardag kl. 9:00-10:30
Verð fyrir skólann er 8.500 kr. á einstakling en fast systkinagjald er 13.000 kr. sama hve mörg þau eru.
Skráning fer fram í netfanginu agust@ka.is þar sem taka skal fram fullt nafn iðkanda sem og fæðingarár. Við hvetjum ykkur eindregið til að hafa hraðar hendur enda stutt í að skólinn hefjist.