Á fundinum verður farið yfir komandi sumar hjá KA-liðinu. Gunnlaugur Jónsson þjálfari ræðir um sumarið og þá verða leikmenn meistaraflokks í sumar kynntir til sögunnar. Einnig verður rætt um þá umgjörð sem ætlunin er að skapa heimaleikjum KA í sumar og ýmislegt fleira ber á góma.
Knattspyrnudeild KA hvetur alla velunnara félagsins að fjölmenna á þessa kynningu í KA-heimilinu. Þetta er kærkomin leið til þess að þétta raðirnar fyrir átök sumarsins og virkja alla sem vettlingi geta valdið til þess að styðja vel við liðið, sem er töluvert breytt frá síðasta keppnistímabili.
Boðið verður upp á veitingar og að sjálfsögðu verða ársmiðar seldir á staðnum.
Sjáumst í KA-heimilinu fimmtudagskvöldið 19. maí!!!