Á laugardaginn sl. var boðið upp á skemmtilega tilbreytingu í Boganum á hinum hefðbundnu laugardagsæfingum hjá yngri flokkum KA en Ólafur
Jóhannesson, landsliðsþjálfari A-landsliðs karla mætti í Bogann ásamt landsliðskonunum Ástu Árnadóttir og Rakeli
Hönnudóttir.
Ásta og Rakel stýrðu æfingum hjá kvennaflokkunum og Óli Jó fylgdist með

æfingum hjá strákunum og gekk á milli hjá þeim.
Þetta heppnaðist virkilega vel og var mikil ánægja með þetta hjá krökkunum en þess ber að geta að Óli gaf æfingunum hjá
okkur mjög góða einkunn og sýnir það að yngriflokkastarfið hjá KA er í góðum málum.
Mynd: Óli Jó leiðbeinir Óskari Bragasyni sem er einn af þjálfurum fjórða flokks.
Til að sjá fleiri myndir af atburðinum skal smella
hér.