Lára á bekknum í metsigri Íslands

U-17 liðið. Lára er nr 16.
U-17 liðið. Lára er nr 16.
KA-stelpan Lára Einarsdóttir er nú stödd í Búlgaríu með U-17 landsliðinu. Þar er liðið að spila í undanriðli Evrópukeppninnar. Mótherjarnir í riðlinum eru Búlgaría, Ítalía og Litháen. Fyrsti leikur liðsins var í dag og fór hann 14-0 fyrir Ísland.
Með sigrinum gerði liðið sér lítið fyrir og vann stærsta sigur íslensks kvennalandsliðs frá upphafi. Lára var á bekknum allan tímann en hún er lítillega meidd aftan á hálsi.
Íslenska liðið var í stórsókn allan leikinn og hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri.
Mörkin skorðu Aldís Kara Lúðvíksdóttir, FH (3), Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfossi (3), Glódís Perla Viggósdóttir, HK (2), Telma Þrastardóttir, Aftureldingu (2), Hildur Antonsdóttir, Val (1), Elín Metta Jensen, Val (1), Hugrún Elvarsdóttir, Stjörnunni (1) og svo Rakel Ýr Einarsdóttir, Leikni (1).
Næstu andstæðingar eru Búlgarar en þeir töpuðu sínum leik í dag, 4-0 gegn Ítölum. Leikurinn verður á miðvikudag kl. 13 að íslenskum tíma en hægt er að fylgjast með í beinni textalýsingu á vefsíðunni uefa.com.