Lára á bekknum hjá Þór/KA s.l. sumar
Lára Einarsdóttir er nú stödd með U-17 landsliðinu í Póllandi þar sem spilaður er milliriðill í Evrópukeppni landsliða.
Eftir tvo 2-0 sigra gegn Englandi og Póllandi er ljóst að Ísland er komið í undanúrslit. Undanúrslitin og úrslitin fara fram í
Sviss í lok júlí.
Lára sat allan fyrsta leikinn á bekknum og sá stöllur sínar setja tvö mörk í seinni hálfleik gegn Englendingum. Í leiknum gegn
Póllandi byrjaði Lára leikinn og spilaði í 50 mínútur. Í þeim leik komu bæði mörkin í seinni hálfleik.
Síðasti leikur liðsins er gegn Svíum á fimmtudaginn og munu úrslit úr þeim leik engu skipta upp á framhaldið.