Lára til Póllands með U-17 landsliðinu

Lára Einarsdóttir
Lára Einarsdóttir
Hin bráðefnilega Lára Einarsdóttir hefur verið valin í U-17 landslið Íslands sem mun spila í milliriðlum Evrópumótsins í Póllandi í apríl. Landsliðshópurinn var tilkynntur í dag.

Lára, sem er fædd árið 1995 og því á eldra ári í þriðja flokki KA, hefur vakið mikla athygli fyrir leikni sína á knattspyrnuvellinum. Þrátt fyrir ungan aldur á hún þegar að baki fjölda leikja í meistaraflokki Þórs/KA og það má mikið vera ef hún á ekki eftir að láta til sín taka með liðinu í Pepsídeildinni í sumar.

Í milliriðli Evrópumótsins í Póllandi spila íslensku stelpurnar við Englendinga 9. apríl, Pólverja 11. apríl og Svía 14. apríl. Þjálfari íslensku stelpnanna er Þorlákur Árnason.

Heimasíðan óskar Láru innilega til hamingju með landsliðssætið.