Leiknir í heimsókn

Haukur Heiðar í kröppum dansi gegn ÍA.  Mynd KK
Haukur Heiðar í kröppum dansi gegn ÍA. Mynd KK
Við tökum á móti Leiknismönnum á glæsilegum Akureyrarvelli í 12. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu í dag og hefst leikurinn kl 16.00 stundvíslega.


Fyrri leik okkar gegn Leikni lauk með jafntefli 0 - 0 í leik sem þótti mjög líflegur og vel leikinn af okkar hálfu. Gengi Leiknis hefur verið brösótt í sumar og eru þeir sem sakir standa í neðsta sæti deildarinnar með 4 stig.  Lið þeirra er þó ágætlega mannað og þetta verður erfiður leikur fyrir okkar menn, það er klárt.  Stigin sem í boði eru þurfa bæði lið og helst öll þrjú, það fer ekki á milli mála.

Af okkar liði er allt gott að frétta. Elmar Dan er eins og komið hefur fram löglegur með okkur og Tufa er heill á ný.  Ljóst að reynsla þeirra beggja mun hjálpa okkur í komandi leikjum.
Menn eru ákveðnir í því að leggja allt í sölurnar og ná stigum í hús, stigum sem geta verið gríðarlega dýrmæt þegar upp verður staðið seint í sept n.k.

Leikurinn er eins og áður hefur komið fram mikilvægur og liðið þarf stuðning,  það er því áríðandi að sem flestir mæti þrátt fyrir óvenjulegan leiktíma.

Samk.v vef KSí mun Þóroddur Hjaltalín dæma leikinn,  honum til aðstoðar verða Sveinn Þórður Þórðarson og Vilhelm Adolfsson.

Áfram K.A.