Ástæðan fyrir þessari beiðni KA til mótanefndar var sú að eini æfingastaður sem félagið hefur nú er Boginn. Ekkert æfingasvæði á grasi er til staðar á Akureyri og þau fáu æfingasvæði sem til staðar eru í nágrannasveitarfélögum eru umsetin og því mjög erfitt að fá æfingar á grasi. Boginn er því eini staðurinn sem KA getur æft þessa dagana. Við þetta má bæta að í aðdraganda leiks HK og KA sl. laugardag á Kópavogsvelli fékk KA eina æfingu á grasvelli þeirra Skallagrímsmanna í Borgarnesi, daginn fyrir leikinn, og er þeim og forráðamönnum Borgarbyggðar færðar þakkir fyrir að láta KA í té þá æfingaaðstöðu.
Í næstu viku, nánar tiltekið þriðjudaginn 7. júní kl. 19.30, spilar KA við Þrótt Reykjavík á Valbjarnarvelli og síðan fáum við Fjölnismenn í heimsókn föstudaginn 10. júní kl. 18.15. Er þess vænst að sá leikur geti farið fram á Akureyrarvelli.