Knattspyrnudeildir KA og Þórs hafa ákveðið að færa leik félaganna í Lengjubikarnum í knattspyrnu karla aftur um 75 mínútur fimmtudagskvöldið 31. mars. Leikurinn átti að vera kl. 20.00 en nýr leiktími er 21.15.
Ástæða fyrir þessari seinkun á leiknum er sú að Akureyri handboltafélag, sem KA og Þór standa að, spilar heimaleik sinn í Íþróttahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöldið kl. 19.30 gegn Aftureldingu og að leik loknum verður Akureyri handboltafélagi afhentur bikar til staðfestingar á deildarmeistaratitlinum í N1-deildinni á þessu keppnistímabili.
Leikur Þórs og KA í Lengjubikarnum hefst sem sagt eftir að handboltaleiknum lýkur í Íþróttahöllinni. Knattspyrnudeildir KA
og Þórs óska Akureyri handboltafélagi til hamingju með deildarmeistaratitilinn.
Tilkynning frá knattspyrnudeildum Knattspyrnufélags Akureyrar og Íþróttafélagsins Þórs.