Næsti heimaleikur KA, sem verður gegn Fjölni nk. föstudag kl. 18.15, verður á Þórsvelli. Ástæðan er sú að ekki er unnt að hleypa leikmönnum og áhorfendum inn á Akureyrarvöll vegna þeirra framkvæmda sem þar eru í fullum gangi.
Vonir voru bundnar við að unnt yrði að spila leikinn við Fjölni á Akureyrarvelli, en undir lok síðustu viku var ljóst að það gæti ekki gengið eftir, enda væri það mikið eftir af framkvæmdunum bæði úti og inni að ógjörningur væri að hleypa fólki inn á svæðið, auk þess sem það myndi aldrei standast þær reglur sem gilda um leiki í 1. deild.
Því var óskað eftir heimild frá Íþróttafélaginu Þór um að spila umræddan leik við Fjölni á Þórsvelli og fékkst sú heimild í dag. Það er því ljóst að KA tekur á móti Fjölni á Þórsvelli nk. föstudag, 10. júní, kl. 18.15 og eru KA-menn hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja vel við strákana. Næsti leikur KA verður hins vegar í kvöld kl. 19.30 á Valbjarnarvelli í Reykjavík gegn Þrótti R og eru KA-menn sunnan heiða hvattir til að mæta á völlinn og öskra KA-menn áfram!
Þótt ekki hafi tekist að ljúka framkvæmdum á Akureyrarvelli fyrir leikinn nk. föstudag liggur þó fyrir loforð frá Fasteignum Akureyrarbæjar um að þarnæsti heimaleikur KA verði leikinn á okkar heimavelli, Akureyrarvelli, þann 24. júní þegar við tökum á móti Gróttumönnum.