Markús Máni Pétursson skrifaði í dag undir nýjan samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2028.
Markús sem er tvítugur miðvörður og uppalinn hjá KA hefur komið gríðarlega vel inn í meistaraflokkslið KA í sumar og leikið alla leiki liðsins. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA sumarið 2025 er hann tók þátt í leik KA og Breiðabliks í Meistarakeppni KSÍ og lék svo í kjölfarið 6 leiki í Bestu deildinni.
Markús Máni er afar spennandi leikmaður sem er einnig mikill leiðtogi á vellinum. Hann hefur einnig gegnt lykilhlutverki í sterku liði 2. flokks KA sem varð Íslandsmeistari sumarið 2024 og keppti loks í evrópukeppni síðasta sumar. Markús er mikill íþróttamaður, hann er sterkur í návígjum, með góðan stökkkraft og fljótur. Þá er hann einnig mikill liðsmaður sem gefur alltaf allt í leikinn.
Það er því afar jákvætt að Markús sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og verður heldur betur spennandi að fylgjast áfram með framgöngu hans í gula og bláa búningnum á næstu árum.