Mynd vikunnar

Smellið á myndina til að sjá hana stærri
Smellið á myndina til að sjá hana stærri
Nú ætlum við að fara af stað með nýjung hérna á ka-sport.is. Liðurinn heitir "Mynd vikunnar",. Viljum við leita til allra KA-manna, sem eigið einhverjar flottar, skrítnar, fyndnar eða skondnar KA-myndir að senda okkur þær með texta þar sem komi eitthvað fram um viðkomandi mynd, hverjir eru á henni og hvenær hún er tekin. Þessi liður mun birtast hér á síðunni á föstudögum.
Fyrsta myndin er ekki gömul en er ansi góð. Á myndinni sem hér fylgir má sjá Arnar Þór Stefánsson leikmann 6.fl karla hjá KA en myndin var tekin um síðustu helgi af Anders Friðjónssyni.

Þegar boltinn fór afturfyrir endalínu átti Arnar að leggja boltann niður og taka markspyrnu en á því augnabliki er myndin var tekin var Arnar nýbúinn að sparka boltanum úr höndunum á sér og glöggur dómari leiksins (Baldvin Ólafsson fyrrum leikmaður KA) biður Arnar um að taka spyrnuna frá jörðu. Arnar er mjög tilfinningaríkur og lýsir þessi mynd honum mjög vel

Ef þið eigið einhverjar myndir sem þið viljið sjá í "Mynd vikunnar" endilega sendið póst á egillarmann87@gmail.com