Smellið á myndina til að sjá hana stærri
Nú er komið að mynd vikunnar. Lítið hefur verið um það að fólk sendi einhverjar skemmtilegar myndir til okkar hér á síðunni
og vil ég minna fólk á sem vill láta góðar og skemmtilegar myndir lýta dagsins ljós hér á síðunni að senda
póst.
Þá er komið að myndinni en þetta er mynd af
Jakobi Níels Halldórssyni heitnum. Nelli eins og hann var kallaður var
einn harðasti stuðnigsmaður KA ef ekki sá harðasti. Hann var ávalt mættur á alla kappleiki hjá KA sama í hvaða íþrótt
það var. Mín minnig af Nella er sú að svona 40 mín fyrir handboltaleiki hjá KA á Gullárunum var búið að setja pulluna sem Nelli
sat alltaf á, á áhorfendabekkinn við hliðiná ársmiðastúkunni. Síðan sat Nelli og fylgdist með leikjunum með miklum
áhuga og oftar en ekki kallaði hann inn á völlin "BABÚ BABÚ BABÚ"
Síðan er þetta maðurinn sem Nellabað er nefnt eftir.
Ef þið hafið einhverja sögu að segja af Nella endilega deila því með okkur hérna í komment.
Ef þið hafið einhverjar myndir endilega senda póst á egillarmann87@gmail.com