Búið er að láta inn á vefinn yfir hundrað myndir af æfingum hjá yngri flokkum KA í síðustu viku. Mikið og gott starf er verið
að vinna þar en um helgina verður nóg að gera hjá mörgum hverjum af þessum flokkum.
Króksmótið er á Sauðárkrók um helgina og þangað fer 7. og 6. flokkur karla hjá KA. Á meðan mun 5. og 6. flokkur kvenna standa
í ströngu á Siglufirði á Pæjumótinu auk þess sem það fara fram leikir á KA-svæðinu svo eitthvað sé nefnt.
Hér má sjá myndirnar (116 talsins)