Nágrannaslagur á Akureyrarvelli á morgun

Númi og félagar í öðrum flokki leika gegn Þór á morgun
Númi og félagar í öðrum flokki leika gegn Þór á morgun
Á morgun mætast nágrannaliðin KA og Þór í öðrum flokki karla. Leikurinn verður á Akureyrarvelli klukkan 17:00 og vonandi að sem flestir mæti og fylgist með síðasta leik KA á tímabilinu.  Um er að ræða leik í A deild á Íslandsmótinu. Búist er við hörkuleik enda einn stærsti leikur tímabilsins og Þórsarar eru enn í fallbaráttu og gætu fallið vinni þeir ekki þennan leik.

KA menn liggja í sjöunda sæti A deildar með 21 stig. Strákarnir hafa átt ágætis sumar í heild sinni, spilað vel á köflum og verið nokkuð óheppnir. Meðal annars hafa þeir tvisvar fengið á sig vítaspyrnu í uppbótartíma og þannig misst stig.

Enga leikmenn vantar í lið KA og þeir Andri Fannar og Haukur Heiðar verða með í þessum leik. Nokkrir leikmenn liðsins eru að fara að spila sinn síðasta leik fyrir annan flokk og stíga sumir  upp í meistaraflokk en aðrir fara í önnur félög eða einfaldlega hætta sökum þess að þeir verða of gamlir til þess að spila fyrir annan flokk.

Í síðasta leik strákana unnu þeir Val með þremur mörkum gegn engu á Akureyrarvelli með mörkum frá Andra Fannari, Núma og svo var þriðja markið sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Jóni Heiðari. Strákarnir áttu þann leik einfaldlega og voru óheppnir að skora ekki fleiri mörk. Með þeim sigri tryggði liðið sér stöðu í deildinni á næsta ári.

Þórsarar aftur á móti eru enn í bullandi fallbaráttu og þurfa helst að vinna þennan leik. Þeir eru í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig á meðan Fylkir er einu stigi á eftir þeim í fallsæti. Fylkismenn fara í heimsókn í Vesturbæinn þar sem þeir mæta KR í síðasta leik sínum. Vinni þeir þann leik þurfa Þórsarar að ná þremur stigum á móti KA til að halda sér í A deild.

Eins og áður sagði hefst leikurinn klukkan 17:00 á Akureyrarvelli á morgun, mánudaginn 20. september, síðasti leikur KA í sumar í öllum flokkum, að sjálfsögðu allir velkomnir.

ÁFRAM KA!