Því miður tókst okkur ekki að sækja það sem við ætluðum vestur á firði í gær eða 3 stig. Eftir að við höfðum haft forustuna lengi tókst heimamönnum að tryggja sér sigur.
Mikil batamerki voru á leik okkar manna í gær td samanborið við leikinn gegn ÍA sl. föstudagskvöld. Menn voru virkilega að leggja sig fram og gáfu sig mjög vel í verkefnið. Það var Elvar Páll sem skoraði mark okkar á 20 mín. eftir frábæra sókn KA sem gjörsamlega splundarði liði heimamanna í það skiptið frá A-Ö. Sennilega eitt besta ,,liðsmark" sem ég hef séð K.A skora lengi. Eðlilega freistuðumst við til þess að halda fengnum hlut og það leit virkilega vel út lengi vel. Boris snéri aftur í byrjunarliðið og virtist hann svo sannarlega hafa tekið bekkjarsetuna alvarlega því hann lék mjög vel í gær. Reyndar má segja að allir hafi verið að virka hjá okkur.
Jöfnunarmark BÍ/Bol var svo fullkomlega óþolandi þannig séð. Leikmaður sem var rétt nýkominn inná fékk boltann fyrir utan teig og honum datt í hug að láta vaða á markið! Ég fullyrði að hann getur reynt þetta aftur, og aftur, og aftur, og hann mun líklega alldrei hitta svona vel! Óverjandi fyrir Sandor. Skömmu áður hafði Dan átt dauða, dauðfæri á markteig en skot hans fór himinhátt yfir. Mark þá og við hefðum pakkað þessum leik inn fullyrði ég. Sigurmark þeirra kom svo 5 mín eftir að þeir jöfnuðu, Ameobi fékk þá of mikinn tíma til þess að athafna sig í teignum og í það eina skipti sem það gerðist var okkur refsað.
Tap staðreynd, en eins og áður sagði er mikið hægt að taka úr þessum leik til að byggja á. Leiki liðið okkar eins og það gerði í gær er ljóst að stigasöfnun tekur mikinn kipp í næstu leikjum.
Áfram K.A.