Knattspyrnudeild KA hefur ráðið Nicklas Rulle sem nýjan markmannsþjálfara félagsins en Nicklas sem kemur frá Danmörku er 26 ára gamall. Þrátt fyrir ungan aldur er Nicklas með mikla reynslu af þjálfun og hefur hann komið af krafti inn í félagið.
Nicklas gekk snemma í raðir Randers þar sem hann vann sig upp í hlutverk í aðalliði félagsins auk þess að spila fyrir varaliðið. Þá var hann viðloðinn yngrilandslið Danmerkur áður en hann hélt til Bandaríkjanna í nám auk þess að spila áfram fótbolta. Í kjölfar útskriftar frá Cumberland University árið 2021 hefur Nicklas helgað sig þjálfarahluta fótboltans en hann hóf strax hjá Randers að sinna þjálfun markmanna í yngriflokkum félagsins.
Hann hefur mikinn metnað fyrir þjálfuninni en hann hefur tekið helstu menntunarstig danska sambandsins auk þess að reka sinn eigin knattspyrnuskóla í Danmörku. Nicklas var einnig markmannsþjálfari karla- og kvennaliðs Jacksonville University á sama tíma og hann tók mastersgráðu sína. Í kjölfarið af því var hann ráðinn sem aðalmarkmannsþjálfari Jacksonville Armada FC.
Nicklas hefur nú þegar hafið störf fyrir KA og erum við afar spennt fyrir samstarfinu og bjóðum við hann hjartanlega velkominn í KA. Sjálfur segist hann vera mjög spenntur fyrir tækifærinu að vera hluti af KA fjölskyldunni og leggja sitt að mörkum í metnaðarfullu starfi félagsins.