Nikolaj Hansen í raðir KA

Velkominn í KA Nikolaj Hansen!
Velkominn í KA Nikolaj Hansen!

Knattspyrnudeild KA barst í dag ansi góður liðsauki en Nikolaj Hansen skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag. Hann hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins undanfarin ár og klárt að hann mun styrkja lið KA mikið.

Nikolaj sem er 33 ára gamall danskur framherji hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Víkingum undanfarin ár en hann hefur leikið með liði Víkings frá árinu 2017, þar áður lék hann með Val. Hann hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og fimm sinnum Bikarmeistari og er hann sigursælasti erlendi leikmaðurinn til að spila á Íslandi.

Sumarið 2021 var hann bæði markahæsti leikmaður Íslandsmótsins og valinn besti leikmaður Bestudeildarinnar. Hann var í algjöru lykilhlutverki í upprisu Víkingsliðsins sem náði einnig stórkostlegum árangri í Sambandsdeild UEFA. Á yngri árum lék hann með Benløse IF og Ringsted IF áður en hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá FC Vestsjælland og HB Køge.

Það er gríðarlega stórt að fá Nikolaj norður í gult og blátt og skýr skilaboð um að félagið ætlar sér strax aftur í deild þeirra bestu eftir vonbrigði sumarsins. Það er von okkar að gæði og reynsla Nikolaj muni bæði skila sér inn á vellinum sem og í því verkefni okkar að þróa áfram hina mörgu ungu og efnilegu leikmenn félagsins.

Við bjóðum Nikolaj hjartanlega velkominn í KA og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hans í gula og bláa búningnum. Fyrr í dag tilkynntum við endurkomu Túfa, Srdjan Tufegdzic, og ljóst að það eru afar spennandi tímar framundan á brekkunni með komu þeirra tveggja.