Örlygur Þór ráðinn þjálfari hjá öðrum flokki

 Í vikunni var gengið frá ráðningu Örlygs Þórs Helgasonar eða einfaldlega Ögga sem þjálfara annars flokks og mun hann strax hefja störf.

 

 Í sumar þjálfaði Eggert Högni Sigmundsson flokkinn en undir hans stjórn lenti liðið í sjöunda sæti A-deildar Íslandsmótsins á meðan Öggi þjálfaði Dalvík/Reyni í D-riðil þriðju deildar þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti.

Öggi er langt frá því að vera ókunnur þessum strákum en hann þjálfaði flokkinn sumarið 2007 og náði mjög góðum árangri - annað sætið í VISA-bikarnum og sæti í A-deild.

Þá er Öggi framkvæmdastjóri félagsins og einnig lék hann um árabil með meistaraflokki karla, ásamt Dínó og Steina Eiðs þjálfara meistaraflokks en þeir munu vinna mikið saman að uppbyggingu flokkanna.

Mynd: Öggi ásamt Gassa formanni knattspyrnudeildar þegar búið var að ganga frá ráðningunni.