Orri og Haukur búnir að framlengja um 2 ár

Orri í leik gegn Þrótti í sumar.
Orri í leik gegn Þrótti í sumar.
Orri Gústafsson og Haukur Hinriksson skrifuðu á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við KA. Báðir eru þeir fæddir 1990 og stigu upp úr öðrum flokknum fyrir síðasta tímabil.

Haukur lék mestmegnis í miðverðinum í sumar en einnig aftarlega á miðjunni. Í sumar lék hann alla leiki KA, samtals 26 og skoraði í þeim tvö mörk. Árið áður fékk hann eldskírn sína þegar hann tók þátt í tveimur leikjum.

Orri er sóknarmaður og í sumar tók hann þátt í 21 leik hjá liðinu. Alls á hann að baki 38 leiki fyrir félagið, sá fyrsti var 2008, og í þeim hefur hann náð að skora tvö mörk.

Stjórn knattspyrnudeildar lýsir yfir mikilli ánægju með þessa samninga, báðir eru mjög efnilegir leikmenn sem verða mikilvægir hlekkir í liði KA í sumar undir stjórn Gulla.

Mynd: Haukur Hinrikss. með boltann á Akureyrarvelli í sumar.