Stuðningsmenn KA ætla að hittast í KA-heimilinu fyrir leik liðsins gegn nágrönnunum í Þór og að sjálfsögðu mæta
allir í gulu. Við munum hittast kl. 16:15, borða saman og taka létt spjall. Þeir sem hafa hug á því að borða með hópnum þurfa
að vera mættir kl. 16:30 í allra síðasta lagi. Gengið verður fylktu liði á völlinn en leikurinn hefst kl. 18:00. Aðgangseyrir á
völlinn er kr. 1.000,- fyrir 17 ára og eldri en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Þórsarar taka á móti okkar mönnum í 20. umferð Íslandsmóts - 1. deildar
karla á fimmtudaginn næsta, 2. september. KA-menn eiga harma að hefna enda
tapaðist heimaleikurinn fyrr í sumar nokkuð sannfærandi.
Leikurinn sem leikinn er á heimavelli Þórs hefst kl. 18:00 og eru áhangendur
hvattir til að mæta snemma (30 mín fyrir leik). Það spáir góðu veðri, 15 -
20°C og hægum vindi að sunnan.
Stuðningsmenn KA ætla að hittast í KA-heimilinu kl. 16:15, borða saman og taka létt spjall. Gengið verður fylktu liði á völlinn.
Pantaðar verða pizzur frá Greifanum og fæst hálf 16" á kr. 500,- og fjórðungur á kr. 250,- Hægt verður að kaupa drykki á
staðnum.
ATH. ekki er hægt að greiða fyrir matinn með greiðslukorti.
Aðgangseyrir á völlinn er kr. 1.000,- fyrir 17 ára og eldri en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Dómari leiksins verður Magnús Þórisson og honum til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Bjarni Hrannar
Héðinsson. Eftirlitsmaður KSÍ verður hinn geðþekki Bragi Bergmann.
KA-menn mætum öll!
Gul og glöð!
Höfum gaman, syngjum saman!
Áfram KA!