Sænskur miðvörður að nafni Boris Lumbana frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Örebro verður á reynslu hjá KA næstu daga.
Lumbana er væntanlegur til landsins í dag og tekur að óbreyttu þátt í æfingu hjá KA á morgun, þriðjudag.
Boris Lumbana er fæddur 1991 og er 187 cm að hæð. Þrátt fyrir ungan aldur er hann kominn með töluverða reynslu í fótboltanum og hefur
tekið þátt í mörgum leikjum Örebro á undirbúningstímabilinu. Á heimasíðu Örebro -
http://www.oskfotboll.se/ kemur fram að Lubana sé fæddur í Kinghasa í Kongo. Uppáhaldslið hans á
Englandi er Bolton, lið Grétars Rafns Steinssonar, uppáhaldslið hans á Ítalíu er Lecce og á Spáni eru
það snillingarnir í Barcelona.
Örebro hefur farið mjög vel af stað í sænsku deildinni. Eftir tvær umferðir er liðið á toppnum ásamt Helsingborg með sex
stig.