Á sama tíma og Gunnlaugur skrifaði undir samning um þjálfun þá skrifaði Sandor hinn reyndi markmaður einnig undir samning um að vera á
milli stanganna hjá okkur næstu þrjú árin.
Sandor er 34 ára gamall og kom hingað til lands fyrir leiktíðina 2004 og síðan þá hefur hann leikið 162 leiki fyrir KA. Í sumar var hann svo
fyrirliði liðsins og lék alla 22 leikina í deildinni.
Hann sér einnig um alla markmannsþjálfun hjá yngri flokkum KA allt árið um kring.