Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Ísey Ragnarsdóttir og Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir skrifuðu í dag undir samninga hjá kvennaliði KA í knattspyrnu.
Allar eru þær uppaldar hjá KA og eru það frábærar fréttir að þær taki slaginn með okkar nýstofnaða kvennaliði.
Hið nýstofnaða lið KA leikur í 2. deild á komandi sumri og erum við ákaflega spennt fyrir því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir okkar stelpur. Á dögunum skrifaði Harpa Jóhannsdóttir undir hjá félaginu og erum við afar ánægð að þær Sara, Ísey og Ellý bætist nú við. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru enn frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga.

Ragnheiður Sara er 17 ára öflugur og beinskeyttur bakvörður sem getur einnig leyst stöður framar á vellinum. Undanfarin tvö tímabil hefur hún leikið samtals 32 leiki í deild og bikar með Dalvík/Reyni í 2. deildinni og Völsungi í Lengjudeildinni og skorað í þeim fimm mörk. Sara á einnig að baki þrjá unglingalandsliðsleiki með U16 ára liði Íslands. Með yngriflokkum KA hefur Sara orðið Íslandsmeistari í 4. og 5. fl ásamt mörgum öðrum góðum sigrum.

Ísey er 17 ára áræðinn og fljótur sóknarsinnaður leikmaður. Undanfarin tvö tímabil hefur hún leikið 18 deildarleiki og skorað eitt mark með Þór/KA í Bestu deildinni og Völsungi í Lengjudeildinni.

Ellý Sveinbjörg er grjótharður varnarmaður en er einnig góður djúpur miðjumaður. Undanfarin tvö tímabil hefur hún leikið 27 deildarleiki með Völsungi í Lengjudeildinni og Dalvík/Reyni í 2. deildinni. Með yngriflokkum KA hefur Ellý orðið Íslandsmeistari í 4. og 5. fl ásamt mörgum öðrum góðum sigrum.