Seinasti leikur okkar á þessu keppnistímabili blasir við og fer hann fram á Akranesi. Þetta sumar flaug framhjá því vissulega er
það eins og það hafi verið í fyrradg þegar við fögnumu sigri í fyrsta leik mótsins gegn Þrótti en svona er þetta
nú bara eða eins og segir í kvæðinu sem Kristján Jóhannss. hefur svo gaman af að synga ,,Enginn stöðvar tímans þunga
nið”
Þarna s.s tókst mér að koma með tilvitun úr Sjá dagar koma eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Það má hinsvegar segja að í þessum orðum Davíðs (sem Kristján reyndar flytur betur en flestir) sé fólgin ákveðin
ákveðin skilaboð til okkar KA fólks þ.e það kemur að því að við brosum þ.e Sjá dagar koma!
Hvað um það þá s.s förum við á Akranes og ljúkum mótinu þar eins og áður sagði. Gestgjafar okkar hafa tekið mikið
stökk upp töfluna og eru taplausir í seinustu níu leikum og því ljóst að það styttist í tapið hjá þeim.
Líka nokkuð um liðið frá okkar seinasta sigri og því jafn ljóst að það styttist í hann.
Leikbönn, meiðsli, veikindi, ferðalög, hafa sett strik í reikning hjá Deano og Steina í sl. leikjum en nú eru menn heilir, úr banni (nema
Sissi) og komnir heim eftir ferðalag.
Heimavöllur ÍA er flottur og það er því ekkert til fyrirstöðu fyrir okkar menn að fara út og njóta þess að leika á grasi
í seinasta sinn á þessari leiktíð. Tryggja okkur eins og þrjú stig í restina.
Áfram KA.
Gunnar Níelsson