Það var markvarðahrellirinn Elvar Páll Sigurðsson sem skoraði mark KA-manna í fyrri hálfleik, en áður hafði hann meðal
annars átt skot í stöng.
Í það heila voru KA-menn mun sterkari í leiknum og sigurinn því fyllilega verðskuldaður.
Fyrir leikinn í kvöld afhenti Sigfús Helgason, formaður Þórs, Hauki Heiðar Haukssyni, blómvönd frá Íþróttafélaginu Þór með korti sem á stendur:
24. júní 2011
KA-menn og konur
Innilega til hamingju með að loksins, loksins komist þið á heimavöll. Gangi ykkur vel.
Íþróttafélagið Þór
----
Þórsurum er þakkaður þessi hlýhugur og gott samstarf við að leysa úr þeim erfiðu vallarmálum sem við hefur verið að glíma í vor og það sem af er sumri.