Sigur hjá 2. fl og jafntefli hjá m.fl. í dag

Guðmundur Óli setti boltan í markið í dag
Guðmundur Óli setti boltan í markið í dag
Bæði m.fl. og 2. fl. léku leiki í dag. M.fl. tók á móti Leikni í mikilli norðanátt á Akureyrarvelli í dag og voru lokatölur þar 2-2. Leiknismenn komust yfir 0 - 2 og var staðan þannig í hálfleik. Okkar menn sýndu hinsvegar mikinn karakter, líkt og í Fjölnisleiknum, og jöfnuðu 2 - 2 með mörkum frá Guðmundi Óla og Hauki Heiðari.

Því miður náðum við ekki að pota einu í viðbót en það stóð þó tæpt. Maður leiksins var valinn Sandar Matus, sem fer út að borða á Strikinu en Andri Fannar fékk var valin af "nuddísunum" í Abaco og fær að fara í íþróttanudd þar.

Strákarnir í 2. fl. tóku svo á móti Fylki á KA-vellinum núna undir kvöld og tókst þeim að sigrá þá 4 - 3 í miklum markaleik. Nánari umfjöllun um leik Leiknisleikin er væntanleg. Áfram KA!


Dan Stubbs í báráttunni um boltann í dag - fleiri myndir að finna á síðunni hans Sævars Geirs.