Síðastliðna nótt eða snemma í morgun hafði einhver tekið sig til og ekið fólksbíl sínum af planinu austan KA-heimilisins og út á Wembley og tekið þar snögga beygju og spólað duglega í leiðinni, greinilega allt í þeim tilgangi að skemma sem mest.
Ekki þarf að orðlengja það að einmitt núna er völlurinn eins viðkvæmur og hann getur frekast verið, enda hefur snjó og klaka tekið upp af vallarsvæðinu síðustu sólarhringa og grassvörðurinn því gegnsósa af vatni. Og líklega er það svo að einmitt það hefur skemmdarvargurinn eða -vargarnir vitað vel og því séð sér leik á borði að valda sem mestu tjóni. Það er ekki hægt að ímynda sér hvað býr í toppstykkinu á fólki sem gerir svona hluti!
Ef einhver vitni kynnu að hafa orðið vitni af þessu atviki þætti okkur í KA-heimilinu fengur að heyra í þeim. En sennilega er til of mikils mælst að einhver gefi sig fram.
ÓÞH