KA sigraði Tindastól/Hvöt 2-1 í Boganum í gær laugardag.
KA menn voru ferskari til að byrja með og náðu upp ágætis spili á köflum, en urðu fyrir áfalli á 10 mínútu þegar Slóvenska tískulöggan Janez Vrenko lenti í samstuði og virtist hafa snúið sig á ökkla, í stað Janez kom tvíburinn Haukur Hinriksson. Eftir þetta tóku stólarnir við sér og voru sterkari og áttu nokkur hálfæri en Sandor var að vanda í góðum fýling. Á 17 mínútu dró til tíðinda þegar Tindastóll fékk hornspyrnu, spyrnan kom á fjær og var boltinn skallaður út í teiginn, þar lá leikmaður stólanna frír í teignum og dúndraði boltanum í gegnum varnarmenn KA og í markið 1-0 fyrir Tindastól.
Liðin sóttu til skiptist og voru KA menn nokkuð slegnir af laginu, þeir reyndu að jafna leikinn en alltaf vantaði úrslitahlaup eða úrslitasendingu, Á 39 mínútu unnu KA menn boltann á kantinum og áttu Ívar og Andrés frábæran þrýhyrning sem endaði með fyrirgjöf út í teiginn á Ívar sem var mættur og lagði boltann í hornið og KA menn búnir að jafna, við markið fylltust KA menn eldmóð en hálfleikurinn fjaraði út. Stólarnir voru færri í rúmar 10 mínútur eftir að einn leikmaður þeirra steinlá eftir samskipti við Túfa, sem er ekkert lamb að leika sér við, drengurinn tölti svo inná völlinn með grímu sem minnti einna helst á skegg jólasveinsins. Tvær breytingar voru gerðar í hálfleik, Túfa og Andrés fóru út og inn komu Arnór og Ómar. Leikur KA gjörbreyttist í byrjun hálfleiksins og vori varamennirnir virkilega sprækir, Arnór átti góðan skalla eftir fyrirgjöf frá Hallgrími og einnig gott skot eftir sendingu innfyrir frá Ómari. Stólarnir tóku aðeins við sér í fimmtán mínutna kafla og áttu nokkur færi en Sandor stóð vaktina í markinu en eina ferðina. Í milli tíðinni gerðu KA breytingu og inn komu Davíð Rúnar og Jakob fyrir Stein og Ívar.
Síðustu 10 mínnúturnar voru KA sterkari og virtist sem að stólarnir væru sprungnir, Hrannar Björn kom inn á kostnað bróður síns Guðmunds óla. Pressa KA manna bar árangur á 91 mínútu þegar horn spyrna frá Hallgrími kom á nær og var tröllið Aðalbjörn Hannesson mættur og stangaði boltann af miklu afli í markið. Þóroddur Hjaltalín dómari leiksins flautaði leikinn af í nær sömu andrá og sigur þvi staðreynd og en einn sigurleikur Gunnlaugs með liðið þrátt fyrir nokkuð ósannfærandi leik, KA menn virtust nokkuð þungir á sér en það kom ekki að sökum enda eru stigin sem skipta öllu máli.