Soccerade: Bæði liðin leika um helgina

Ívar skoraði fyrra mark KA1 seinustu helgi
Ívar skoraði fyrra mark KA1 seinustu helgi
Á laugardaginn kl 17.15 leikur KA 2 gegn Draupni og á sunnudaginn leikur KA 1 gegn Þór 2 kl. 14.15.

KA 1&2
Bæði liðin hafa leikið tvo leiki og unnið þá. KA 1 hefur unnið Völsung og Tindastól/Hvöt með markatölunni 4-1. KA 2 hefur unnið Dalvík/Reyni og KF með markatölunni 6-3. Öll þessi fjögur lið leika í 2. deild en til gamans má geta að seinasta vetur vann liðið aðeins einn leik í mótum gegn liðum úr 2. deild eða ofar.  Allir okkar leikmenn eru klárir í leiki helgarinnar og ættum við því að getað verið með tvö flott og sterk lið. Reiknað er með að Gulli, Ingvar og Miló munu nota um 30 leikmenn um helgina.

Draupnir
Þetta er þriðja tímabil Draupnis sem leikur í 3. deildinni. Fyrstu tvö tímabilin náði liðið ágætum árangri yfir vetrar mánuðina en hafa ekki náð að fylgja þeim árangri á sumrin. Liðið endaði í 5. sæti í Soccerade í fyrra og 2. sæti í sínum riðli í Lengjubikarnum. Liðið féll úr bikarnum eftir að hafa tapað KA 2-0 í Boganum seinasta vor. Liðið er talsvert breytt síðan þá en t.d. Víkingur Hauksson hefur skrifað undir 2 ára samning við okkur. Auk hans hafa Aðalbjörn Hannesson, Hinrik Hinriksson og Óskar Þór Jónsson æft og spilað með okkur í vetur og mun tíminn leiða það í ljós hvort þeir skipti endanlega yfir til okkar. Þjálfaraskipti urðu einnig eftir tímabilið en Ægir Reynirsson tók við liðinu af Hlyni Birgissyni sem heldur þó áfram að spila með liðinu. Liðið byrjaði illa í ár í Soccerade en hafa verið betri með hverjum leiknum sem hefur liðið. 

Þór 2
Eins og KA 2 þá er þetta lið blandað af leikmönnum úr 2. fl og mfl. Þeir hafa unnið báða sína leiki og er þetta því úrslitaleikur um efsta sætið í riðlinum. Þeir byrjuðu á að vinna stór sigur á Magna 8-3 og unnu svo Völsung seinustu helgi 2-1. Þannig þrátt fyrir að þetta lið sé nr. 2 hjá Þór ber að taka þá alvarlega.