Á laugardaginn fer fram annar leikur KA1 í Soccerademótinu þetta árið. Mótherjar liðsins að þessu sinni er sameinað lið
Tindastóls og Hvatar og hefst leikurinn kl. 14.15 í Boganum.
KA1
Liðið hefur leikið einn leik sem vannst á sannfærandi hátt gegn Völsungi, 2-0. Mörkin í þeim leik skoruðu Haukur Heiðar og
Arnór Egill. Allir leikmenn eru klárir í þennan leik og gæti því verið erfitt fyrir Gunnlaug að velja liðið þar sem KA2 hafa einnig
þótt sýna góða takta. Mikilvægt er að liðið mæti ákveðið til leiks því að mótherjarnir ætla að
öllum líkindum að selja sig dýrt í þessum leik.
Tindastóll/Hvöt
Í nóvember var tekið sú ákvörðun að sameina Tindastól og Hvöt. Bæði þessi lið hefðu leikið í 2. deild
næsta sumar en sameinað lið Tindastóls/Hvatar taka sæti þeirra. Vonast heimamenn að með þessu geti þeir byggt upp enn öflugara lið.
Tindastóll féllu úr 2. deild 2009 en unnu hana í fyrra. Hvöt hafa aftur á móti átt ágætist gengi að fagna í 2. deildinni
síðustu ár. Seinasta sumar enduðu þeir í 5. sæti og 2008 og 2009 í 4. sæti. Tindastóll hafa að mestu í gegnum tíðina
verið skipað heimamönnum en hefur það loðið við Hvöt að vera með sunnanmenn sem og útlendinga.
Liðið er búið að leika tvo leiki í Soccerademótinu og hlutu þeir þrjú stig úr þeim. Í fyrsta leiknum töpuðu
þeir 1-0 á móti Magna en gegn Völsungi var allt annað uppi á teningnum þar sýndu þeir stjörnuleik og unnu 4-1. Í fyrri leiknum voru
þeir einungis með þá leikmenn sem eru búsettir hér fyrir norðan en í seinni leiknum þá fengu þeir þá leikmenn sem
búa á höfuðborgasvæðinu yfir vetrarmánuðina. Að öllum líkindum koma þeir aftur í þennan leik og má
því búast við flottu liði frá þeim.