Soccerade: Öruggur sigur hjá KA 2

KA 2 sigraði Draupni 4-1 í Boganum í dag.


KA 2 4-1 Draupnir
1-0 Hrannar Björn Steingrímsson
2-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson
2-1 Símon Símonarson 
3-1 Hinrik Hinriksson 
4-1 Jóhann Örn Sigurjónsson

Byrjunarlið
Ólafur Jóhann Magnússon, Ásgeir Vincent Ívarsson, Ingvar Már Gíslason, Stefán Hafsteinsson, Magnús Blöndal, Steinn Gunnarsson, Ómar Friðriksson, Aksentije Milisic, Hrannar Björn Steingrímsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson og Orri Gústafsson.

Bekkur
Óskar Þór Jónsson, Hinrik Hinriksson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Arnór Egill Hallsson, Jón Heiðar Magnússon, Sigurjón Fannar Sigurðsson, Aron Pétursson, Ævar Ingi Jóhannesson og Þórarinn Stefánsson.

Fyrsta mark leiksins kom fljótlega en Aci senti þá á Hrannar Björn sem setti boltann í markið. Bróðir hans bætti við öðru marki með skoti fyrir utan, skotið var þó ekki sérstakt en vissi markvörður Draupnis ekki hvort hann væri að koma eða fara og endaði boltinn í markinu. Eftir þetta vorum við líklegir að bæta við en Símon Símonarson sem skoraði ófá mörkin fyrir yngri flokka KA hér á árum áður skoraði gott mark fyrir Draupni. Þetta mark sló okkar menn útaf laginu og var jafnræði með liðum út hálfleikinn.

Óskar, Hinrik, Jóhann, Aron, Ævar og Þórarinn komu allir inná einhverntíman í seinni hálfleik og áttu þeir allir ágæta innkomu. Þeir þrír síðarnefndu eru allir í 3. fl og er þetta því fín reynsla fyrir þá að fá að spila í meistaraflokksmóti. Þriðja mark okkar skoraði Hinrik gegn sínum gömlu félögum eftir góðan undirbúning frá Hrannari. Jóhann skoraði seinasta mark leiksins eftir hornspyrnu frá Ævari en Jóhann hafði áður skallað í stöng. 

Yfir heildina vorum við klárlega sterkari aðilinn í leik sem var ekki mikið fyrir augað. Þrátt fyrir þriggja marka sigur hefði verið gaman að sjá hraðara spil og meiri kraft. Eftir leikinn er liðið með fullt hús stiga eins og Þór1 en við mætum þeim mánudaginn 7. febrúrar í úrslitaleik um hvort liðið vinnur riðilinn.