...við tippum! Já!
Nú þegar tveimur umferðum er lokið af fimm í fyrsta innanfélagsleik KA-Getrauna á þessu tímabili eru línur eilítið farnar
að skýrast á toppnum. Gylfi Hans Gylfason hefur verið hlutskarpastur í báðum umferðum og leiðir keppnina með fjórum stigum. Skjótt
skipast þó veður í lofti eins og Gunnar Níelsson sannaði fyrir okkur um helgina þegar hann skaust upp í 3. - 4. sæti úr 8. - 13.
sæti frá því í síðustu viku.
Margir brenndu sig á leik Chelsea og Sunderland í síðustu viku og nokkrir brenndu sig reyndar á Lundúnarliðinu í þessari einnig og fengu
á sig stigafrádrátt fyrir vikið. Það er ljóst að þetta fyrirkomulag kryddar keppnina og verður til þess að um meiri sviptingar getur
orðið að ræða en ella.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessum skemmtilega leik en honum líkur um miðjan desember. Vegleg verðlaun, í boði fyrirtækja
á svæðinu, verða veitt þeim getspakasta.
Eftir áramót verða þrjár keppnir til viðbótar þar sem verðlaunin verða ekki síðri og auk þess verða vegleg verðlaun
veitt fyrir samanlagðan árangur í öllum keppnum.
Getraunakvöldin eru í KA-heimilinu á milli kl. 20 og 22 á föstudögum. Einnig getur fólk sett sig í samband við getraunastjóra í
síma 824 2720 eða með tölvupósti á netfangið
getraunir@ka-sport.is og jafnframt er hægt að senda inn seðla í gegnum tölvupóst.
Fylgist með á upplýsingasíðu
KA-Getrauna og á
Facebook.