Styttist í framkvæmdir við stúku Akureyrarvallar

Í febrúar er gert ráð fyrir að Akureyrarbær bjóði út framkvæmdir við stúku Akureyrarvallar – heimavallar KA, en um er að ræða viðamiklar framkvæmdir sem koma til með að bæta verulega aðstöðu bæði innan dyra sem utan.

Sem kunnugt er var fyrir nokkrum árum gerður samningur Akureyrarbæjar og KA um uppbyggingu félagsins við Dalsbraut, sem miðaði að gerð gervigrasvallar vestan íþróttahússins og stúku við hann. Við efnahagshrunið var horfið frá þessum áformum og ákveðið að leita annarra leiða til úrlausna fyrir KA. Niðurstaðan var sú að ráðast í endurbætur á Akureyrarvelli og að KA gæti nýtt sér aðstöðuna þar í það minnsta þar til ákvörðun um framtíðaruppbyggingu KA yrði tekin. Snemma síðasta árs var gerður um þetta samningur sem kvað á um fimm ára endurbótaáætlun og nú þegar er hluti þeirrar áætlunar komin til framkvæmda – þ.e. nauðsynlegar lagfæringar á sjálfum vellinum.

Við samþykkt fjárhagsátlunar Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 var samþykkt 50 milljóna króna fjárveiting til endurbóta á stúku Akureyrarvallar. Nýverið var samþykkt í skipulagsnefnd bæjarins að framkvæmdirnar færu í grenndarkynningu. Valþór Brynjarsson, verkefnastjóri viðhalds hjá Fasteignum Akureyrarbæjar, segist reikna með að framkvæmdirnar verði boðnar út um miðjan febrúar. Gangi það eftir gætu framkvæmdir hafist í byrjun mars.

En hvað á svo að gera við stúku Akureyrarvallar? Væntanlegar framkvæmdir miða að því að uppfylla sífellt auknar kröfur um slík knattspyrnumannvirki. Endurbæturnar á stúkunni lúta að öryggismálum leikmanna og dómara, aðstöðu vallarstarfsmanna, aðgengi fyrir fatlaða, aðstöðu fyrir ársmiðahafa og valda gesti í hálfleik og loks að lagfæra aðstöðu blaðamanna. Snyrtingar leikmanna verða aðgreindar, aðkoma valdra gesta að gestastofu eru leyst utanfrá og skarast ekki lengur við aðkomu dómara, lyfta fyrir fatlaða verður sett upp með aðgengi að stúku, nýju salerni og gestastofu, skrifstofuaðstaða starfsmanna verður stórbætt og byggð verður lítil blaðamannastúka.

Inni í stúkunni verður skipt um hurðir, raflagnir endurnýjaðar, sett upp öryggiskerfi, sett upp neyðar- og brunavarnalýsing, lagðar tölvulagnir, vatnslagnir og blöndunartæki endurnýjuð, ofnakerfi yfirfarin og endurnýjuð, loftræsting sett upp,snyrtingar gesta endurnýjaðar, hljóðkerfi endurnýjað, ferlimál fatlaðra lagfærð með lagfæringum á römpum, stígum og nýrri lyftu milli snyrtinga almennings og áhorfendasvæðis, veitingasala, áhaldahús, miðasöluskúrar og auglýsingagrindverk yfirfarin og endurbætt eftir þörfum og síðast en ekki síst verður komið fyrir sætum í stúku (plastskeljar) fyrir milli sjö- og átta hundruð áhorfendur.

-ÓÞH