Það styttist óðum í N1 mót okkar KA-manna en rétt eins og í fyrra standa KA og N1 fyrir öflugum og metnaðarfullum mótum fyrir bæði stráka og stelpur.
Strákarnir leika listir sínar dagana 1.-4. júlí en í ár fer drengjamótið fram í fertugasta sinn og stelpurnar taka svo við keflinu dagana 7.-9. ágúst næstkomandi. Það er því heldur betur framundan sannkölluð fótboltaveisla hjá okkur í KA.
Undirbúningur er í fullum gangi og spennan eykst með hverjum deginum. Von er á þúsundum ungra knattspyrnumanna, þjálfara, fjölskyldna og stuðningsfólks til Akureyrar í kringum mótin en N1 mótin eru einhverjar stærstu ferðahelgar á Akureyri ár hvert enda gríðarlega skemmtilegir dagar fullir af fótbolta, gleði og samveru.
KA og N1 eru gríðarlega stolt af okkar öflugu mótum og erum við ávallt að leita lausna til að betrumbæta mótið, hvort sem er innan sem utan vallar. Við kynnum nú með stolti nýjan mótsvef, N1motid.is, sem er nú kominn í loftið. Þar verður öllum helstu upplýsingum um mótið safnað saman á einn stað og vefurinn uppfærður jafnóðum eftir því sem nær dregur.
Þar má einnig kynna sér sögu mótsins, skoða myndir og myndbönd frá liðnum árum og finna upplýsingar um bæði N1 mót drengja og stúlkna.
Við hvetjum keppendur, þjálfara, foreldra og aðra mótsgesti til að kynna sér vefinn vel og fylgjast með uppfærslum næstu daga.
Allt um mótið á N1motid.is.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Akureyri!